Borgarhólsskóli sigraði FiðringAlmennt - - Lestrar 116
Fiðringur á Norðurlandi er hæfileikakeppni grunnskólanna að fyrirmynd Skrekks í Reykjavík og Skjálftans á Suðurlandi.
Þetta er í þriðja skipti sem Fiðringur fer fram og í ár tóku tíu skólar þátt af Norðurlandi. Keppnin fór fram í Hofi á Akureyri og stóð Borgarhólsskóli uppi sem sigurvegari.
Á heimasíðu Borgarhólsskóla segir að Fiðringur hafi verið skylduvalgrein meðal nemenda í áttunda, níunda og tíunda bekk.
Leiðbeinandi hópsins er Arnþór Þórsteinsson. Nemendur sömdu sitt eigið atriði og hafa æft af kappi alla vorönnina undir handleiðslu Arnþórs og er mikil áhersla lögð á sjálfstæð og lýðræðisleg vinnubrögð, hugmyndin og útfærslan kemur frá nemendum sjálfum.
Einnig sér hópurinn alfarið um listræna útfærslu hvað varðar búninga, leikmynd, sviðhreyfingar, ljós og hljóð þannig að þátttaka í Fiðringi er heljarinnar skóli í sjálfu sér. Hápunkturinn er svo að hitta hin liðin og sýna afraksturinn á leiksviði með allri leikhústækninni og töfrunum. Atriðið fjallar umsamspil einstaklinga og gervigreindar.
Keppnin verður aðgengileg síðar í spilara RÚV.