Borgarhólsskóli sigraði Fiðring

Fiðringur á Norðurlandi er hæfileikakeppni grunnskólanna að fyrirmynd Skrekks í Reykjavík og Skjálftans á Suðurlandi.

Borgarhólsskóli sigraði Fiðring
Almennt - - Lestrar 116

Hópurinn á sviðinu í Hofi
Hópurinn á sviðinu í Hofi

Fiðringur á Norðurlandi er hæfileikakeppni grunnskólanna að fyrirmynd Skrekks í Reykjavík og Skjálftans á Suðurlandi.

Þetta er í þriðja skipti sem Fiðringur fer fram og í ár tóku tíu skólar þátt af Norðurlandi. Keppnin fór fram í Hofi á Akureyri og stóð Borgarhólsskóli uppi sem sigurvegari.

Á heimasíðu Borgarhólsskóla segir að Fiðringur hafi verið skylduvalgrein meðal nemenda í áttunda, níunda og tíunda bekk.

Leiðbeinandi hópsins er Arnþór Þórsteinsson. Nemendur sömdu sitt eigið atriði og hafa æft af kappi alla vorönnina undir handleiðslu Arnþórs og er mikil áhersla lögð á sjálfstæð og lýðræðisleg vinnubrögð, hugmyndin og útfærslan kemur frá nemendum sjálfum. 

Einnig sér hópurinn alfarið um listræna útfærslu hvað varðar búninga, leikmynd, sviðhreyfingar, ljós og hljóð þannig að þátttaka í Fiðringi er heljarinnar skóli í sjálfu sér. Hápunkturinn er svo að hitta hin liðin og sýna afraksturinn á leiksviði með allri leikhústækninni og töfrunum. Atriðið fjallar umsamspil einstaklinga og gervigreindar.

Keppnin verður aðgengileg síðar í spilara RÚV.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744