01. apr
Baldur Sig í VölsungÍþróttir - - Lestrar 133
Mývetningurinn Baldur Sigurðsson hefur fengið félagaskipti yfir í Völsung og mun klæðast grænu í sumar.
Í fréttatilkynningu segir:
Baldur, töluvert hoknari af árum, reynslu og titlum síðan síðast, og knattspyrnuráð voru sammála um að ferlinum yrði ekki hægt að ljúka án þess að ná nokkrum leikjum í grænu!
Baldur færir okkar unga hóp mikið og er meira en til í að leiðbeina strákunum okkar innan sem utan vallar.
Baldur á í safni sínu 2 Íslandsmeistaratitla og 5 bikartitla auk þess sem hann vann 2.deild með Völsungi árið 2003.
Hann varð einnig Íslandsmeistari innanhús með Völsungi ári áður, sælla minninga.
Við bjóðum Baldur Sigurðsson hjartanlega velkominn í grænt á ný!