Átta Völsungar valdir í U17 landsliðin

Völsungur á átta fulltrúa í U17 landsliðum Íslands í blaki en þjálfarar ungingalandsliðanna hafa valið þá lokahópa sem fara nú í október til keppni í

Átta Völsungar valdir í U17 landsliðin
Íþróttir - - Lestrar 244

Völsungur á átta fulltrúa í U17 landsliðum Íslands í blaki en þjálfarar ungingalandsliðanna hafa valið þá lokahópa sem fara nú í október til keppni í Danmörku.

Þar taka liðin þátt í Norðurlandamóti NEVZA U-17.

Liðin munu æfa í Reykjavík 14. og 15. október nk. áður en þau halda til Ikast á mið Jótlandi þar sem mótið fer fram dagana 16.-20. október.

Konur: Heiðdís Edda Lúðvíksdóttir, Kristey Marín Hallsdóttir, Sigrún Anna Bjarnadóttir og Sigrún Marta Jónsdóttir. Þjálfari kvennaliðsins er Miguel Mateo Castrillo og honum til aðstoðar verður Ramsés Ballesteros Pinela.

Karlar: Aron Bjarki Kristjánsson, Hörður Mar Jónsson, Hreinn Kári Ólafsson og Sigurður Helgi Brynjúlfsson. Þjálfari karlaliðsins er Oscar Fernandez Celis og honum til aðstoðar verður Bjarki Benediktsson.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744