22. nóv
Áslaug Munda æfir með U19 kvenna í knattspyrnuÍþróttir - - Lestrar 484
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir er í hópi 22 leikmanna sem valdir hafa verið til æfinga með U19 ára landsliði kvenna í knattspyrnu.
Æfingarnar fara í Kórnum og Egilshöll 24.-26. nóvember nk.
Áslaug Munda var, eins og áður hefur komið fram, valin efnilegasti leikmaður meistaraflokks Völsungskvenna eftir síðasta sumar.
Hún hefur verið fastamaður í U17 landsliðinu á þessu ári og var nýverið valin áfram í æfingahóp U17. (volsungur.is)