Áskorun til stjórnvalda um stækkun flugstöðvarinnar á AkureyriAðsent efni - - Lestrar 314
Núverandi flugstöð
annar engan veginn því hlutverki að þjónusta samtímis innanlands og millilandaflug hvað þá heldur aukna millilandaflugumferð sem
fyrirsjáanleg er á næstu árum. Stjórn Markaðsstofu Ferðamála á Norðurlandi telur mikil tækifæri felast í auknu
millilandaflugi milli Akureyrar - London- Kaupmannahafnar og annarra áfangastaða í Evrópu, tækifæri sem skapað geta hundruð nýrra starfa á
Norðurlandi og aukið enn frekar ferðamannastrauminn til landsins, ekki síst yfir vetrartímann.
Nú hefur verið ákveðið að leggja enn frekari áherslu á markaðssetningu og kynningu á millilandafluginu erlendis og því
mikilvægt að hefjast nú þegar handa við framkvæmdir á stækkun flugstöðvarinnar á Akureyrarflugvelli.
F.h. stjórnar Markaðsstofu Ferðamála á Norðurlandi.
Ásbjörn Björgvinsson framkvæmdastjóri.