Ásgeir í U21 landsliðinuÍþróttir - - Lestrar 536
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 landsliðs karla í knattspyrnu hefur valið hópinn sem mætir Slóvakíu og Albaníu í riðlakeppni Evrópumóts U21 landsliða.
Í hópnum er Húsvíkingurinn Ásgeir Sigurgeirsson leikmaður KA. Ásgeir hefur komið við sögu í öllum leikjum KA í Pepsi-deildinni í sumar og skorað 5 mörk og gefið 6 stoðsendingar. Ásgeir hefur leikið 5 leiki fyrir U21 landsliðið. 5 leiki fyrir U19 landsliðið og skorað 3 mörk og 7 leiki fyrir U17 ára landsliðið og skorað eitt mark.
Báðir leikir liðsins fara fram ytra og leikur liðið gegn Slóvakíu þann 5. október og Albaníu þann 10. október. Liðið lék sinn fyrsta leik í undankeppninni 4. september síðastliðin, en þá beið liðið lægri hlut gegn Albaníu á Víkingsvelli 2-3. En þar var Ásgeir í byrjunarliði Íslands og lék 74 mínútur í leiknum. (kasport.is)