Anna María Íslandsmeistari í trissuboga

Anna María Alfreðsdóttir heldur áfram að gera það gott í bogfimi en um helgina var haldið Íslandsmót á Víðistaðatúni í Hafnarfirði.

Anna María Íslandsmeistari í trissuboga
Íþróttir - - Lestrar 187

Anna María mundar bogann.
Anna María mundar bogann.

Anna María Alfreðsdóttir heldur áfram að gera það gott í bogfimi en um helgina var haldið Íslandsmót á Víðistaðatúni í Hafnarfirði.

Anna María, sem keppir fyrir ÍF Akur, gerði sérlítið fyrir og vann kvennaflokkinn í trissboga og varð Íslandsmeistari aðeins 17 ára gömul.

Hér má lesa allt um mótið en þess má geta að faðir Önnu Maríu, Alfreð Birgisson, varð í þriðja sæti í trissubogakeppni karla en hann keppir einnig fyrir ÍF Akur.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744