Ályktun V-listans í NorðurþingiAðsent efni - - Lestrar 524
Með því að leggja niður sjúkrahússtarfsemi á
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga væri þjónustan færð fjær íbúum á stóru svæði í Þingeyjarsýslum
með tilheyrandi öryggisleysi, óþægindum og útgjöldum fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra. Þar við bætist það
ófremdarástand sem hlytist af því að segja yrði 70 manns upp störfum sem jafngildir því að 3000 manns í Reykjavík misstu
vinnuna. Þá ber að hafa í huga að HÞ hefur ásamt Framhaldsskólanum á Húsavík, Sýsluskrifstofunni og
Náttúrustofu Norðausturlands gegnt stóru hlutverki í að laða ungt fólk til starfa í Þingeyjarsýslum að loknu
námi.
Fyrir liggur að Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri er ekki í
stakk búið til að taka við þeirri starfsemi sem ráðuneyti velferðarmála hyggst færa þangað frá Húsavík og
öðrum byggðakjörnum á Norðurlandi. Hér er því á ferðinni leikur að tölum en ekki raunhæf tillaga að leið til að
spara almannafé.