Ályktun V-listans í Norðurþingi

Fundur V-listans, lista Vinstri grænna, félagshyggju- og umhverfisverndarfólks í Norðurþingi, haldinn á Húsavík 6. október 2010, mótmælir harðlega

Ályktun V-listans í Norðurþingi
Aðsent efni - - Lestrar 524

Fundur V-listans, lista Vinstri grænna, félagshyggju- og umhverfisverndarfólks í Norðurþingi, haldinn á Húsavík 6. október 2010, mótmælir harðlega framkomnum hugmyndum um niðurskurð á fjárveitingum til Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Ef af honum verður mun það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir búsetu og mannlíf á öllu starfssvæði stofnunarinnar, bæði í bráð og lengd.

Með því að leggja niður sjúkrahússtarfsemi á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga væri þjónustan færð fjær íbúum á stóru svæði í Þingeyjarsýslum með tilheyrandi öryggisleysi, óþægindum og útgjöldum fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra. Þar við bætist það ófremdarástand sem hlytist af því að segja yrði 70 manns upp störfum sem jafngildir því að 3000 manns í Reykjavík misstu vinnuna. Þá ber að hafa í huga að HÞ hefur ásamt Framhaldsskólanum á Húsavík, Sýsluskrifstofunni og Náttúrustofu Norðausturlands gegnt stóru hlutverki í að laða ungt fólk til starfa í Þingeyjarsýslum að loknu námi.

Fyrir liggur að Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri er ekki í stakk búið til að taka við þeirri starfsemi sem ráðuneyti velferðarmála hyggst færa þangað frá Húsavík og öðrum byggðakjörnum á Norðurlandi. Hér er því á ferðinni leikur að tölum en ekki raunhæf tillaga að leið til að spara almannafé.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744