Álaug Munda efnilegust í 2. deild og í liði ársinsÍþróttir - - Lestrar 191
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var valin efnilegasti leikmaður 2. deildar kvenna í knattspyrnu og auk þess í liði ársins.
Það var Fótbolti.net sem stóð að vali á liði ársins.
Fótbolti.net fylgdist vel með 2. deildinni í sumar og fékk þjálfara og fyrirliða deildarinnar til að velja lið keppnistímabilsins sem má sjá hér.
Kayla June Grimsley spilandi þjálfari Völsungs fram eftir sumri er einnig í liði ársins.
Um Áslaugu Mundu segir: Áslaug Munda er fædd árið 2001 og því enn gjaldgeng í 3.flokk. Hún fékk eldskírn í meistaraflokks fótbolta síðastliðið sumar en hefur verið í þungavigtarhlutverki hjá Völsungum í sumar. Virkilega flinkur og skemmtilegur leikmaður sem skoraði sex mörk í 16 leikjum í deildinni og hefur verið að spila vel fyrir U17 ára landslið Íslands á árinu.
Áslaug Munda í leik gegn Fjölni.
Kayla June Grimsley í leik gegn Einherja.