Álaug Munda efnilegust í 2. deild og í liði ársins

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var valin efnilegasti leikmaður 2. deildar kvenna í knattspyrnu og auk þess í liði ársins.

Álaug Munda efnilegust í 2. deild og í liði ársins
Íþróttir - - Lestrar 191

Áslaug Munda var valin efnilegust í 2. deild.
Áslaug Munda var valin efnilegust í 2. deild.

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var valin efnilegasti leikmaður 2. deildar kvenna í knattspyrnu og auk þess í liði ársins.

Það var Fótbolti.net sem stóð að vali á liði ársins.

Fótbolti.net fylgdist vel með 2. deildinni í sumar og fékk þjálfara og fyrirliða deildarinnar til að velja lið keppnistímabilsins sem má sjá hér

Kayla June Grimsley spilandi þjálfari Völsungs fram eftir sumri er einnig í liði ársins.

Um Áslaugu Mundu segir: Áslaug Munda er fædd árið 2001 og því enn gjaldgeng í 3.flokk. Hún fékk eldskírn í meistaraflokks fótbolta síðastliðið sumar en hefur verið í þungavigtarhlutverki hjá Völsungum í sumar. Virkilega flinkur og skemmtilegur leikmaður sem skoraði sex mörk í 16 leikjum í deildinni og hefur verið að spila vel fyrir U17 ára landslið Íslands á árinu. 

Áslaug Munda

Áslaug Munda í leik gegn Fjölni.

Kayla June Grimsley

Kayla June Grimsley í leik gegn Einherja.



  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744