28. feb
Aðalgeir Sævar ráðinn í starf verkefnastjóra stafrænnar þróunar hjá NorðurþingiAlmennt - - Lestrar 399
Aðalgeir Sævar Óskarsson hefur verið ráðinn í starf verkefnastjóra stafrænnar þróunar Norðurþings.
Aðalgeir er með BSc í upplýsingatæknifræði frá Háskólanum á Akureyri.
Hann hefur starfað sem tæknimaður hjá Advania síðustu fjórtán ár og áður sem tæknimaður hjá TM Software.
Í tilkynningu segir að Aðalgeir muni hefja störf hjá sveitarfélaginu á vormánuðunum.