05. apr
Völsungur vann gull í 2. deild Íslandsmótsins í BocciaÍþróttir - - Lestrar 200
Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í sveitakeppni í boccia fór fram í Laugardalshöll um síðustu helgi og þangað mættu Völsungar til leiks.
A-lið Eikar frá Akureyri varð Íslandsmeistari í boccia en D-lið Völsunga sigraði í 2. deild. C-lið Völsungs varð í þriðja sæti.
D- lið Völsungs skipuðu þeir Aron Fannar Skarphéðinsson, Ólafur Karlsson og Sigurður Haukur Vilhjálmsson. C- liðið skipuðu Kistín Smith, Kristbjörn Óskarsson og Kristófer Ástvaldsson.
Þorgeir Baldursson var á Íslandsmótinu og tók meðfylgjandi myndir.
Olli, Fannar og Siggi Haukur á verðlaunapalli.
Liðin sem unnu til verðlauna á mótinu.