Völsungur mætir Þór/KA í 16 liða úrslitum Mjólkurbikars kvennaÍþróttir - - Lestrar 309
Dregið var í 16 liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í höfuðstöðvum KSÍ í dag og þar var Völsungur í pottinum.
Völsungur drógst á móti Þór/KA en liðin úr Pepsi Max deildinni koma inn í keppnina núna.
"Þetta er bara spennandi verkefni og frábært að fá leik á móti svona stórliði eins og Þór/KA. Hefði nú samt verið mjög gott að fá heimaleik en nú þurfa Húsvíkingar bara að fjölmenna á Akureyri og styðja okkur. Allt getur gerst í bikarnum" sagði Harpa Ásgeirsdóttir fyrirliði Völsungs í spjalli við 640.is í dag.
Leikurinn fer fram föstudaginn 31. maí eða laugardaginn 1. júní en Þór/KA á heimaleik eins og áður kemur fram, sannkallaður Norðurlandsslagur.
Hér má sjá dráttinn í heild sinni.
Þess má geta að Jóney Ósk Sigurjónsdóttir hefur skipt yfir í Aftureldingu.