16. apr
Völsungur í undanúrslitÍþróttir - - Lestrar 150
Völsungur tryggðu sér í gær sæti í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í blaki.
Stelpurnar fengu HK í heimsókn í PCC höllina og unnu leikinn 3-1.
Stigahæstar í liði Völsungs voru Nikkia Benitez með 22 stig, Ana Rita Branco og Shelby Pullins með 15 stig hvor.
Völsungur hafði unnið fyrri leikinn í Kópavogi 3-0 og mætir KA í undanúrslitum en sigra þarf tvo leiki í þeirri viðureign til að komast í úrslit.
Völsungur sækir KA heim á þriðjudaginn 18. apríl á Akureyri kl. 19:00 og fær KA í heimsókn fös. 21. apríl kl. 19:00.
Fv. Ana Rita Branco, Shelby Pullins og Nikkia Benitez voru stigahæstar í liði Völsungs.
Ljósmynd Blakdeild Völsungs.