01. jún
Völsungsstelpurnar slegnar út úr MjólkurbikarnumÍþróttir - - Lestrar 327
Þór/KA sló 2. deildar lið Völsungs úr keppni þegar liðin mættust í 16 liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna á Akureyri í gærkveldi.
Lokatölurnar leiksins voru 7-0 og gefa til kynna mikinn getumun á liðunum í gærkveldi og eins og segir á heimasíðu Þórs:
"þrátt fyrir hetjulega baráttu þeirra húsvísku áttu þær aldrei möguleika gegn úrvalsdeildarliðinu og fátt annað um leikinn að segja. En úrslitin þýða að Þór/KA er komið í 8 liða úrslit".