19. júl
Völsungar komnir í átta liða úrslitÍþróttir - - Lestrar 183
Völsungar sigruðu Hauka í kvöld í 16 liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins en leikið var á PCC vellinum á Húsavík.
Juan Hermida Guardia skoraði eina mark leiksins eftir laglegt samspil í teignum eftir um klukkutíma leik.
Völsungar komnir í átta liða úrslit keppninnar sem er bikarkeppni neðri deildar liða.
Juan Hermida Guardia fagnar marki sínu.
Einar Ísfjörð Sigurpálsson varði mark Völsungs í kvöld.
Gestur Aron Sörensson var í byrjunarliðinu í kvöld.
Óskar Ásgeirsson í baráttu við Haukamann.
Tryggvi Granoi Jóhannsson sækir að marki gestanna.