VinafundurAđsent efni - - Lestrar 259
Ţann 1. mars 2021 var fyrsti Vinafundur haldinn í Hlyn.
Til fundarins var bođađ í ţeim tilgangi ađ rjúfa einangrun fólks međ greindan heilabilunarsjúkdóm auk maka eđa ađstandanda, međ ţví ađ skapa stađ og stund fyrir Vinafundinn.
Á fyrsta Vinafundi rćddi hópurinn saman og upp komu vangaveltur hvort nóg vćri ađ hittast mánađarlega en niđurstađan varđ sú ađ hittast annan hvern mánudag sem viđ síđan höfum gert.
Vinafundurinn er haldin annann hvern mánudag frá 11-13 í Hlyn félagsađstöđu eldri borgara í Norđurţingi og nágrenni. Ţar mćtum viđ og höfum gaman saman, njótum hádegishressingar, syngjum viđ harmonikku undirleik, spjöllum og segjum sögur hver á sínum forsendum.
Mćtingin hefur veriđ mjög góđ frá fyrsta fundi. Hópurinn samanstendur af 14 til 16 einstaklingum auk okkar ţriggja sem komum ađ verkefninu.
Upplifun okkar er sú ađ fólk nýtur ţess ađ koma inn í hóp ţar sem allir eru á sínum forsendum og njóta samveru og upplifa sig örugga.
Eina heimsókn hefur Vinafundurinn fengiđ sem var nú í september. Ţađ var Hulda Sveinsdóttir heilabilunarráđgjafi. Hún óskađi eftir ađ fá ađ upplifa einn Vinafund.
Alla sem greinst hafa međ heilabilunarsjúkdóm á okkar svćđi bjóđum viđ velkomna til Vinafundar. Hafiđ samband viđ Fanneyju Hreinsdóttur hjá félagsţjónustu Norđurţings.
Norđurţing er eina sveitarfélagiđ á landinu sem býđur uppá ţessa ţjónustu og er upplifunin af verkefninu mjög góđ.
Fyrir hönd félagsjónustu Norđurţings:
Ásta Sigurđardóttir
Fanney Hreinsdóttir
Sigríđur Hörn Lárusdóttir