24. ágú
Viltu rækta með mér? Opinn fundur um samfélagsgróðurhús á HúsavíkFréttatilkynning - - Lestrar 189
Eimur, SSNE og Hraðið boða til opins kynningarfundar mánudaginn 5. september n.k.
Efni fundarins er möguleg uppbygging á samfélags-gróðurhúsi við Ásgarðsveg á Húsavík.
Hugmyndin er hluti af Evrópuverkefninu Crowdthermal sem Eimur tekur þátt í.
Fundurinn fer fram í fundarsal Fosshótels, milli kl. 16:30 og 18:00.
Allir sem hafa áhuga á ræktun lands og lýðs eru hvattir til þess að koma og taka þátt á fundinum.