Vilt þú hafa áhrifAðsent efni - - Lestrar 37
VILT ÞÚ HAFA ÁHRIF?!
Vissir þú að:
- einungis 2 konur sitja í sveitarstjórn Norðurþings (önnur þeirra í leyfi) af 9 aðilum í sveitarstjórn?
- í 8 nefndum og ráðum á vegum Norðurþings sitja einungis 2 konur sem formenn?
- í 8 nefndum og ráðum á vegum Norðurþings sitja 7 konur og 35 karlar?
- 38% munur er á launum kvenna og karla í dreifðari byggðum landsins, konum í óhag samkvæmt upplýsingum hjá Jafnréttisstofu?
Konukvöld verður haldið á vegum kvenna í stjórnmálum í Norðurþingi fimmtudaginn 28. janúar kl. 20:00 í sal stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26.
Léttar veitingar verða í boði.
Jafnréttisfulltrúi ásamt konum í stjórnmálum í Norðurþingi skora á konur að láta til sín taka í samfélaginu. Sjónarmið kvenna eru ekki síður mikilvæg en sjónarmið karla í samfélagsmálum sem hafa áhrif á nærumhverfi okkar.