14. mar
Vikuleg framvinda í gangagreftri í Húsavíkurganga - Vika 10Almennt - - Lestrar 690
Fyrsta sprenging í munna Húsavíkurganga var sprengd fimmtudaginn 10. mars þegar tveir stuttir salvar voru sprengdir.
Í lok viku 10 er lengd ganga þar með 6 m. sem er liðlega 0.6% af graftrarlengd.
Jarðgöngin verða 943 m. löng og tæplega 11 m. breið. Verkinu á að vera lokið í ágúst 2017. Verktaki er LNS Saga.