Vanir menn sýna Upprisaholdsins.is á Gamla Bauk

Leikhópurinn Vanir menn sýna leikritið Upprisaholdsins.is eftir Hörð Þór Benónýsson í tvígang um helgina. Fyrri sýningin verður á Gamla-Bauk

Leikhópurinn Vanir menn.
Leikhópurinn Vanir menn.

Leikhópurinn Vanir menn sýna leikritið Upprisaholdsins.is eftir Hörð Þór Benónýsson í tvígang um helgina. Fyrri sýningin verður á Gamla-Bauk á föstudagskvöldið kl. 22:00 en sú síðar á Græna Hattinum á Akureyri  kl. 21:00 á laugardagskvöldið.

 

Upprisaholdsins.is fjallar um útrásarmenn úr Reykjavík sem opna stefnumótaþjónustu í tengslum við byggingu álvers á Bakka við Húsavík.

Það er um að gera fyrir húsvíkinga búsetta á Akureyri að mæta á Græna hattinn og sjá Vana menn fara á kostum.

Borðapantanir á Græna Hattinum eru  í síma 864-5758 og miðaverð aðeins kr.1500.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744