06. feb
Vanir menn sýna Upprisaholdsins.is á Gamla BaukAlmennt - - Lestrar 66
Leikhópurinn Vanir menn sýna leikritið Upprisaholdsins.is eftir Hörð Þór Benónýsson í tvígang um helgina. Fyrri sýningin verður á Gamla-Bauk á föstudagskvöldið kl. 22:00 en sú síðar á Græna Hattinum á Akureyri kl. 21:00 á laugardagskvöldið.
Upprisaholdsins.is fjallar um útrásarmenn úr Reykjavík sem opna stefnumótaþjónustu í tengslum við byggingu
álvers á Bakka við Húsavík.
Það er um að gera fyrir húsvíkinga búsetta á Akureyri að mæta á Græna hattinn og sjá Vana menn fara á kostum.
Borðapantanir á Græna Hattinum eru í síma 864-5758 og miðaverð aðeins kr.1500.