Vaðlaheiðargangaganga

Greið leið ehf. – félag um gerð Vaðlaheiðarganga áformar að standa fyrir göngu laugardaginn 18. september yfir Vaðlaheiði milli væntanlegra

Vaðlaheiðargangaganga
Aðsent efni - - Lestrar 405

Greið leið ehf. – félag um gerð Vaðlaheiðarganga áformar að standa fyrir göngu laugardaginn 18. september yfir Vaðlaheiði milli væntanlegra gangamunna Vaðlaheiðarganga. Lagt verður af stað í gönguna frá Skógum (gamli Vaðlaheiðarvegurinn) í Fnjóskadal kl 10:30.

 

Vaðlaheiðargöng verða 7,4 km að lengd og gengið verður því nokkuð lengri leið. Fólki er bent á að taka með sér nesti. Með í för verður Ágúst Guðmundsson jarðfræðingur sem stýrt hefur rannsóknum vegna ganganna. Hann mun fræða göngufólk um jarðfræði svæðisins og væntanlegt gangastæði.

Rúta fer frá Umferðarmiðstöðinni á Akureyri Hafnarstræti kl. 10. Óskað er eftir að þátttaka verði tilkynnt á netfangið eything@eything.is fyrir kl. 19 föstudaginn 17. september.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744