Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar í BorgarhólsskólaAlmennt - - Lestrar 152
Í síđustu viku fór fram undankeppni Borgarhólsskóla skólans vegna Stóru upp-lestrarkeppninnar.
Verkefniđ sjálft hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember á fćđingardegi Jónasar Hallgrímssonar.
Tíu nemendur sjöunda bekkjar öttu kappi í upplestri en keppnin fór fram í Sal skólans.
Ţađ eru Raddir, samtök um vandađan upplestur og framsögn sem hafa stađiđ fyrir keppninni á landsvísu en umsjón međ verkefninu var í höndum skólaskrifstofa í hverju hérađi. Verkefniđ er nú orđiđ sjálfbćrt og í höndum hvers skólasvćđis.
Markmiđ međ upplestrarkeppni er ađ vekja athygli og áhuga í skólum á vönduđum upplestri og framburđi. Keppnin sjálf er í rauninni aukaatriđi og forđast skyldi ađ einblína á sigur.
Mestu skiptir ađ kennarar nýti ţetta tćkifćri til ađ leggja markvissa rćkt viđ einn ţátt móđurmálsins međ nemendum sínum, vandađan upplestur og framburđ, og fái alla nemendur til ađ lesa upp, sjálfum sér og öđrum til ánćgju. Stefnt skyldi ađ ţví ađ allur upplestur í tengslum viđ keppnina sé fremur í ćtt viđ hátíđ en keppni.
Á hátíđinni voru lesarar ţau, Bergjón Paul Jenke, Bryndís Vala Ţorkelsdóttir, Daníel Snćr Lund, Heimir Örn Karólínuson, Hildur Arna Ágústsdóttir, Jón Helgi Jónsson, Karen Linda Sigmarsdóttir, Kristján Gunnar Jóhannsson, Lena Björk Sigursveinsdóttir og Sveinn Jörundur Björnsson.
Fulltrúar Borgarskólan í lokakeppninni verđa ţau Bryndís Vala, Daníel Snćr, Karen Linda og Sveinn Jörundur. Lokakeppnin fer fram á Ţórshöfn seinnihluta aprílmánađar. (Borgarholsskoli.is)