Umsjónarmaður íþróttamannvirkja á Kópaskeri og í Lundi

Amin Asghari Mobaraki hefur verið ráðinn sem umsjónarmaður íþróttamannvirkja á Kópaskeri og í Lundi í 50% starfshlutfall og Bjarni Þór Geirsson látið af

Amin Asghari Mobaraki.
Amin Asghari Mobaraki.

Amin Asghari Mobaraki hefur verið ráðinn sem umsjónarmaður íþróttamannvirkja á Kópaskeri og í Lundi í 50% starfshlutfall og Bjarni Þór Geirsson látið af störfum sem umsjónarmaður íþróttahússins og tjaldsvæðisins á Kópaskeri.

Fram kemur á heimasíðu Norðurþings að Amin muni hafa umsjón með íþróttamannvirkjunum, innkaupum, viðhaldi og þrifum auk þess sem hann heldur utan um tímapantanir og innheimtu vegna notkunar almennings á íþróttahúsunum.

Ljósmynd Hafþór

Íþróttamannvirkin í Lundi.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744