16. maí
Tónleikar í Snartarstaðakirkju og SafnahúsinuAlmennt - - Lestrar 52
Um helgina halda nokkrir nemendur Tónlistarskóla Húsavíkur á mið- og framhaldsstigi tvenna tóneika. Þeir eru nemendur Leifs Vilhelms Baldurssonar gítarkennara og heita Tandri Gauksson, Unnar Þór Axelsson, Hjörtur Ásbjarnarson, Alexander Hermannsson og Bóas Gunnarsson.
Tónleikarnir verða í Snartarstaðakirkju laugardaginn 16. maí kl. 16:00 og Safnahúsinu á Húsavík sunnudaginn 17. maí kl. 17:00.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.