Tónkvíslin verður haldin 16. nóvember nk.

Tónkvíslin, söngkeppni Framhaldsskólans á Laugum verður haldin í 18. skipti þann 16. nóvember næstkomandi.

Tónkvíslin verður haldin 16. nóvember nk.
Fréttatilkynning - - Lestrar 48

Tónkvíslin, söngkeppni Framhaldsskólans á Laugum verður haldin í 18. skipti þann 16. nóvember næstkomandi.  
 
Sigurvegari keppninnar keppir fyrir hönd skólans í söngkeppni framhaldsskólanna. Samhliða keppninni er einnig haldin grunnskólakeppni þar sem nemendum grunnskóla af svæðinu býðst að stíga á svið með framhaldsskólanemunum, og keppa um fyrsta til þriðja sæti í úrslitum keppninnar.
 
Í ár verður hægt að kaupa streymi á beina útsendingu á keppnina í gegnum „Livey“ og verður vefslóð á streymið auglýst síðar. Árlega höfum við verið að fá á staðinn um 300 - 400 áhorfendur og hvetjum við alla til þess að koma á Laugar þann 16. nóvember nk. til að upplifa og sjá þá miklu og frábæru vinnu sem nemendur hafa á sig lagt til þess að keppnin geti orðið að veruleika.
 
Verið öll hjartanlega velkomin 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744