26. maí
Tónasmiðjan rokkar gegn krabbameiniAlmennt - - Lestrar 167
Tónasmiðjan mun rokka gegn krabbameini í Húsavíkurkirkju nk. sunnudag kl. 17.
Á tónleikunm koma saman flytjendur á ýmsum aldri, einsöngvarar, bakraddir og hljómsveit ásamt heiðursgesti sem að þessu sinni er Kristján Gíslason söngvari.
Þar munu hljóma lög sem hafa fylgt okkur öllum í gegnum tíðina. Lög med snillingum eins og Guns 'N' Roses, Tinu Turner, Stjórninni, Mannakorn, Bon Jovi, SSsól, Start, Bruno Marsh, Gunna Þórðar ofl.
Allur ágóði tónleikanna rennur í Krabbameinsfélags Þingeyinga og Ljósið endurhæfing og stuðningsmiðstöð.
Nánari upplýsingar um miðapantanir og verð fást með því að smella HÉR
640.is leit við á æfingu hjá Tónasmiðjunni í nýju æfingahúsnæði við Garðarsbraut og tók meðfylgjandi myndir.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.