Töframaður ættaður frá Húsavík í undanúrslitum

Undanúrslitin í sjónvarpsþættinum Ísland got talent á Stöð 2 eru framundan og þar er töframaður einn ættaður frá Húsavík á meðal keppenda.

Jón Arnór Pétursson töframaður.
Jón Arnór Pétursson töframaður.

Undanúrslitin í sjónvarps-þættinum Ísland got talent á Stöð 2 eru framundan og þar er töframaður einn ættaður frá Húsavík á meðal keppenda.

Um er að ræða Jón Arnór Pétursson, 7 ára töframann, en hann er sonur Péturs Veigars Péturssonar Skarphéðinssonar úr Lönguvitleysu. Móðir hans er hins vegar úr Stykkishólmi og heitir Heiðrún Björk Jónsdóttir.

Undanúrslitin fara fram í þremur þáttum og komast tvö atriði áfram úr hverjum þætti. 6. atriði keppa síðan til úrslita sunnudaginn 27. apríl.

Fyrsti undanúrslitaþátturinn verður sýndur í beinni á Stöð 2 nk. sunnudagskvöld og verður Jón Arnór þar á meðal keppenda. Hann er síðastur á svið af þeim sjö sem taka þátt í þessum fyrsta þætti undanúrslitanna en áhorfendur heima í stofu geta kosið í símakosningu.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744