Þjóðadagur á Húsavík á laugardag

Þjóðadagur verður haldinn næstkomandi laugardag 27. nóvember í sal stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26 á Húsavík kl. 14-16. Nokkrir Þingeyingar af

Þjóðadagur á Húsavík á laugardag
Almennt - - Lestrar 207

Danirnir okkar á Þjóðadeginum 2008.
Danirnir okkar á Þjóðadeginum 2008.

Þjóðadagur verður haldinn næstkomandi laugardag 27. nóvember í sal stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26 á Húsavík kl. 14-16. Nokkrir Þingeyingar af erlendum uppruna munu kynna matarvenjur og siði, þ.m.t. jólasiði frá löndum sínum. 

 

 

 

Þjóðadagur í Þingeyjarsýslum var fyrst haldinn haustið 2008 á vegum Húsavíkurdeildar Rauðakross Íslands og tókst frábærlega og óhætt er að segja að  matarvenjur og siðir Þingeyinga eru í raun mun fjölbreyttari en ætla mætti við fyrstu sýn.

Allir eru hjartanlega velkomnir milli kl. 14 og 16 í sal stéttarfélaganna á laugardaginn og aðgangur er ókeypis.

Stjórn Húsavíkurdeildar RKI.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744