Þjálfi: Sýnum tillitssemi

Aðalfundur Hestamannafélagsins Þjálfa sem haldinn var 2. maí 2012 sendi frá sér eftirfarandi ályktun:

Þjálfi: Sýnum tillitssemi
Aðsent efni - - Lestrar 829

Aðalfundur Hestamannafélagsins Þjálfa sem haldinn var 2. maí 2012 sendi frá sér eftirfarandi ályktun:

Hestamannafélagið Þjálfi beinir þeim tilmælum til allra samferðamanna, að sýna tillitssemi við fólk á hestbaki, sem og gangandi eða hjólandi vegfarendum.

Allt of oft kemur það fyrir að of hratt og óvarlega er ekið á bílum eða öðrum ökutækjum, framhjá fólki á hestbaki, stóru sem smáu. Ekki þarf að útskýra hversu hættulegt þetta er og með ólíkindum hversu mikið skeitingarleysi felst í slíkri hegðun.

Við hestamenn skulum einnig sýna tillitssemi, hvar sem við förum um á hestum okkar.

Það er nóg pláss fyrir okkur öll,  gefum okkur smá tíma og berum virðingu hvort fyrir öðru,- það kostar ekkert.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744