Þingeykst og þjóðlegtAðsent efni - - Lestrar 439
Þingeyskt og þjóðlegt handverk!
Málþing í Skúlagarði, Kelduhverfi
Sunnudaginn 26.04.2009, kl. 13:00-17:00
Verkefnið Þingeyskt og þjóðlegt snýst um að viðhalda þjóðlegum menningararfi í handverki, með áherslu á Þingeyjarsýslur. Málþinginu er ætlað að hjálpa til við að skilgreina hvað er þingeyskt og þjóðlegt og er handverksfólk hvatt til að mæta vel.
Dagskrá
Setning
13:00 Hulda Jónsdóttir, verkefnisstjóri Þingeyskt og þjóðlegt setur málþingið.
Framsöguerindi
13:10 Sigrún Kristjánsdóttir, þjóðfræðingur og væntanlegur forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga. - Þjóðlegir minjagripir: hugmynd, hönnun og sala.
13:30 Oddný E. Magnúsdóttir, þjóðfræðingur - Hefur handverk landamæri?
13:50 Guðrún Hadda Bjarnadóttir, veflistakona - Hnífar eru drjúgir til afþreyingar
14:10 Jón Hólmgeirsson, húsgagnasmiður - Útskurður
14:30 Jenný Karlsdóttir, kennari. - Munstur og menning.
14:50 -15:10 Fyrirspurnir.
15:10 -15:40 Kaffihlé – veitingar í boði Þingeyskt og þjóðlegt.
15:40 -16:40 Umræðuhópar.
16:45 – 17:00 Niðurstöður úr umræðuhópum kynntar.
17:00 Málþingi slitið.
Menningarráð Eyþings styrkir verkefnið.