Þingeyingur janúarmánaðar - Vala ÓmarsFólk - - Lestrar 467
Þingeyingafélagið hefur valið Völu Ómars sem Þingeying janúarmánaðar 2020.
"Ég er dóttir Ómars Friðrikssonar og Snjólaugar Ármannsdóttur. Afi minn og amma í föðurætt eru Friðrik Jónsson og Unnur Sigurðardóttir. Afi minn og amma í móðurætt eru Ármann Sigurjónsson og Rósa Björnsdóttir
Foreldrar mínir fluttu til Reykjavíkur áður en ég fæddist en við áttum þó heima á Húsavík þegar ég var 4-6 ára. Við fórum reglulega norður á sumrin þegar ég var yngri, bæði til Húsavíkur og til Halldórsstaða í Reykjadal þar sem pabbi minn ólst upp.
Ég hef mestalla ævina búið í Reykjavík fyrir utan 3 ár í New York og 7 ár í London en þar lærði ég sviðslistir og leikstjórn. Ég bý núna í Vesturbænum með sambýlismanni mínum Auðuni Lár Sverrissyni og tveimur dætrum okkar Karítas og Tinnu. Ég kenni við Listaháskóla Íslands ásamt því að skrifa og leikstýra stuttmyndum sem og vinna við sviðslistir. Einnig kenni ég jóga.
Stuttmyndina ÉG//I skrifaði ég og leikstýrði með Hallfríði Þóru Tryggvadóttur. Myndin fjallar um transmanneskju og leit hennar að frelsinu að vera hún sjálf".
Myndin hefur verið sýnd á kvikmyndahátíðum um allan heim en á síðasta ári fékk hún eftirfarandi verðlaun:
“Grand Jury Honorable Mention” fyrir bestu erlendu stuttmyndina á Outfest kvikmyndahátíðinni í Los Angeles,
“Best Fictional Short” á Trans Pride Brighton og “Best Short Film” á Vancouver International Women in FilmFestival.