ÞakkirAðsent efni - - Lestrar 1719
Mig langar fyrir mína hönd, foreldra minna, systkina og fjölskyldna okkar að koma kæru þakklæti til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæra Steingríms Kristins Sigurðssonar.
Sérstakar þakkir fá Völsungur, Guðrún Kristinsdóttir formaður, Hulda Agnarsdóttir, Díana Jónsdóttir, Sigríður Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, Ingibjörg Sigurjónsdóttir sálfræðingur, starfsfólk leikskólans, allir þeir frábæru listamenn sem sáu um tónlist við útförina og allt það góða fólk sem bakaði og þjónaði við erfidrykkjuna og svo síðast en ekki síst fær Unnsteinn Júlíusson læknir þakkir fyrir ALLT.
Að lokum vil ég segja að ég er stoltur Húsvíkingur, þið Húsvíkingar eruð búin að snúast í kringum okkur (eins og faðir minn orðaði það) á þessum erfiðu tímum. TAKK, TAKK þið eruð öll yndisleg……
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Lilja Sigurðardóttir.