25. sep
Tap í síðasta leikÍþróttir - - Lestrar 509
Völsungar fengu Njarðvíkinga í heimsókn um helgina en þá fór fram síðasta umferð 2. deildar.
Njarðvík hafði þegar unnið deildina og Magni fylgir þeim upp í Inkassodeildina.
Í stuttu máli sagt tapaði Völsungur 1-3 og voru öll mörkin skoruð í fyrri hálfleik. Mark heimamanna gerði fyrirliðinn Bjarki Baldvinsson.
Völsungur endaði í 7. sæti 2. deildar en lokastöðuna má sjá hér
Sæþór Olgeirsson varð markakóngur deildarinnar með 23 mörk.