05. maí
Tap í fyrsta leikÍþróttir - - Lestrar 380
Völsungur hóf keppni í 2. deild karla í gær þegar strákarnir sóttu Kára heim á Akranesi.
Völsungar sáu aldrei til sólar í leiknum, enda fór hann fram innan dyra í Akraneshöllinni.
Þegar yfir lauk höfðu heimamenn í Kára skorað fjögur mörk án þess að þeir grænu næðu að svara fyrir sig.
Næsti leikur strákanna er gegn Vestra á heimavelli en Vestra er spáð sigri í deildinni.