30. apr
Tap fyrir KeflavíkÍþróttir - - Lestrar 544
Völsungur lék gegn Keflavík í undanúrslitum C-deildar kvenna í Lengjubikarnum um helgina.
Leikið var á Húsavík og það er skemmst frá því að segja að gestirnir fóru með sigur af hólmi.
Anita Lind Daníelsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir skoruðu mörk Keflavíkurliðsins og lokastaðan 0-2.
Anita Lind fyrirliði Keflavíkur kom þeim á bragðið með marki í fyrri hálfleik.
Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði seinna mark Keflavíkur.
Hafrún Olgeirsdóttir í baráttu við Keflavíkurstúlkur.