Sýndu hvað í þér býr !

Sýndu hvað í þér býr! Námskeið í félagsmálafræðslu á Húsavík 13. janúar Námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið á Húsavík 13.janúar. Námskeiðið hefst

Sýndu hvað í þér býr !
Aðsent efni - - Lestrar 428

Sýndu hvað í þér býr!

Námskeið í félagsmálafræðslu á Húsavík 13. janúar

Námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið á Húsavík 13.janúar. Námskeiðið hefst klukkan 18:00 og stendur til 22:00 og fer fram í félagsaðstöðu Völsungs. Námskeiðsgjald er 5000 krónur.

Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í framkomu og fundarsköpum. Námskeiðsgjald er 5000 krónur. 

Áhugasömum er einnig bent á að afla sér frekari upplýsingar um verkefnið  hjá Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og águdrun@umfi.is og  Sigurði í síma 861-3379 og á sigurdur@umfi.is

 

 

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744