Sunnudagaskólinn hefst á morgun

Sunnudagaskóli Húsavíkurkirkju hefst í Bjarnahúsi n.k. sunnudag 10. október kl. 11 fyrir hádegiđ. Mikill söngur, biblíusaga, brúđuleikrit, leikir, bćnir

Sunnudagaskólinn hefst á morgun
Ađsent efni - - Lestrar 65

Sunnudagaskóli Húsavíkurkirkju hefst í Bjarnahúsi n.k. sunnudag 10. október kl. 11 fyrir hádegið. Mikill söngur, biblíusaga, brúðuleikrit, leikir, bænir og samtal. Við hvetjum börn og foreldra, afa og ömmur og aðra til að mæta og eiga góða stund með okkur.

 

 

 

Tökum vel á móti sr. Sólveigu Höllu Kristjánsdóttur, Þverá í Reykjahverfi sem ráðin hefur verið til að hafa umsjón með sunnudagaskólanum og tíu til tólf ára starfi kirkjunnar í vetur. En hún starfaði um árabil í sunnudagaskóla Akureyrarkirkju við góðan orðstír. Leiðtogar í æskulýðsstarfi kirkjunnar í vetur verða Axel Flóvent, Gunnar Ingi og Brynjar á gítar. Aðrir: Lilja Björk, Helga Gunnars og Inga Ósk.

Fjölmennum með börnin í sunnudagaskólann í vetur.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744