Styrkir til rannsókna á krabbameinum hjá körlumAđsent efni - - Lestrar 611
Krabbameinsfélag Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki til vísindarannsókna á krabbameinum hjá körlum. Styrkir þessir tengjast átaki félagsins er snýr að baráttunni gegn krabbameinum hjá karlmönnum.
Veittir verða fimm styrkir, samtals að upphæð 2,5 milljónir króna, sem skiptast þannig að einn styrkur er 1.000.000 krónur, tveir styrkir eru 500.000 krónur og tveir styrkir 250.000 krónur.
Umsóknir skal senda á sérstökum eyðublöðum til Vísindaráðs Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík eða á netfangið jr@krabb.is. Umsóknarfrestur er til 1. október. Styrkirnir verða veittir í desember.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Haraldsdóttir forstjóri Krabbameinsfélags Íslands í síma 540 1900.