14. jan
Styrkir kaup á nýjum björgunarbátAðsent efni - - Lestrar 561
Stéttarfélagið Framsýn í Þingeyjarsýslum hefur ákveðið að styrkja kaup á nýjum öflugum björgunarbát til Húsavíkur. Félagið leggur 200.000 krónur í söfnun sem stendur yfir.
Björgunarsveitin Garðar hefur fjárfest í opnum harðbotna slöngubát af gerðinni Atlantic 75 af bresku sjóbjörgunarfélagi. Garðar á fyrir björgunarbát sem sveitin taldi rétt að endurnýja enda umferð um Skjálfanda stóraukist á síðustu árum, ekki síst með tilkomu hvalaskoðunarferða frá Húsavík og strandveiða. (Fréttatilkynning)