Styðjum Valgerði með því að fara að kjósaAðsent efni - - Lestrar 859
Laugardaginn 26. janúar, gefst okkur Þingeyingum tækifæri á að koma okkar manneskju í vænlegt sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í norðaustur kjördæmi í komandi alþingiskosningu.
Valgerður Gunnarsdóttir er að góðu kunn hér en hún bjó og starfaði á Húsavík í fjölmörg á. Sat m.a. í bæjarstjórn í 12 ár og starfaði við Framhaldsskólann á Húsavík frá stofnun hans eða í 12 ár, þar til hún var skipuð skólameistari Framhaldsskólans á Laugum árið 1999. Margir hefðu álitið að framtíð Framhaldsskólans á Laugum væri málum blandin á þeim tíma. En undir hennar forystu hefur staða skólans styrkst með nýjungum í kennsluháttum og uppbyggingu á staðnum.
Við hvetjum Þingeyinga til að taka þátt í prófkjörinu á laugardaginn og tryggja Valgerði örugga kosningu í annað sæti á listans. Við munum ekki ekki sækja pólitísk áhrif með því að sitja heima.
Kosið verður í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins laugardaginn 26. janúar í sal Framsýnar á Húsavík frá kl. 10.00 til 18.00. Til að geta kosið þarf að ganga í Sjálfstæðisflokkinn en það er hægt að gera á netinu www.xd.is. Á kosningardag er hægt að ganga í flokkinn um leið og kosið er með því að fylla út skráningarblað. Engar skuldbindingar fylgja því að ganga í flokkinn.
Virðingarfyllst Jón Helgi Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórn Norðurþings