18. ágú
Stelpurnar spila í Inkassodeildinni að áriÍþróttir - - Lestrar 371
Völsungsstelpurnar tryggðu sér sæti í Inkassodeildinni með sigri á Gróttu í dag á heimavelli.
Þær eru búnar að vinna deildina, til hamingju stelpur
Harpa Ásgeirsdóttir fyrirliði Völsungs skoraði eina mark leiksins í upphafi leiks.
Völsungur er á toppnum með 25 stig og liðið leikur eins og áður segir í Inkassodeildinni á næsta tímabili.
Sindri er með 18 stig í öðru sæti og Grótta í þriðja sæti með 17 stig. Völsungur á leik til góða á Sindra og Gróttu.
Karlalið Völsungs lá fyrir Víði í Garði á heimavelli í gær. Aðalsteinn Jóhann Friðriksson skoraði mark Völsungs.
Ljósmynd Græni herinn.