11. ágú
Stelpurnar náðu í stig á HornafirðiÍþróttir - - Lestrar 112
Völsungsstelpurnar lögðu land undir fót í gær og sóttu Sindra heim á Hornafjörð.
Heimastúlkur náðu forystu í leiknum skömmu áður en flautað var til hálfleiks en Völsungar náðu að jafna í blálokin. Það gerði Sarah Catherine Elnicky.
Eftir leikinn er Völsungur fjórum stigum eftir toppliði Fjarðabyggðar/Hattar/Leiknis í 2. deildinni.
Fram er í þriðja sæti með 22 stig en á leik til góða.