10. jún
Stelpurnar komnar á toppinnÍþróttir - - Lestrar 376
Völsungur tók á móti Álftanesi í 2. deild kvenna í dag og leikið var á Húsavíkurvelli.
Sigrún Auður Sigurðardóttir skoraði á 22. mínútu og kom gestunum í 1-0 og þannig var staðan var hálfleik.
Hulda Ösp Ágústsdóttir jafnaði snemma fyrir heimamenn í síðari hálfleik. Hún bætti við öðru marki á 82. mínútu og reyndist það vera sigurmarkið í leiknum.
Völsungur hefur unnið alla sína þrjá leiki og er með níu stig á toppi 2. deildar.