10. okt
SOS og Halla Marín með kertaljósatónleika í kirkjunniAlmennt - - Lestrar 378
Hljómsveitarmeðlimir í SOS hafa æft stíft að undanförnu fyrir kertaljósatónleikana sem verða í Húsavíkurkirkju um helgina. Þar munu þeir flytja, ásamt gestasöngkonunni Höllu Marín Hafþórsdóttir ýmis þekkt dægurlög sem öll eru í rólegum og notalegum búningi.
Kertaljósatónleikrnir koma í stað sumartónleika Norðurþings, sem kallaðir hafa verið Tónlistarveislan í gegnum árin, og verða fyrri tónleikarnir á föstudagskvöldið kl. 20:30 og þeir síðari á sama tíma á laugardagskvöldið.
Þá stefna strákarnir í SOS og Halla Marín á að halda þessa sömu tónleika víða í Norðurþingi s.s. á Kópaskeri og Raufarhöfn og jafnvel víðar.