Sölusýning á ljósmyndum úr safni Péturs ljósmyndara

Á morgun, föstudag kl. 14, opnar í Safnahúsinu á Húsavík sölusýning á ljósmyndum úr safni Péturs Jónassonar ljósmyndara.

Pétur Jónasson ljósmyndari.
Pétur Jónasson ljósmyndari.

Á morgun, föstudag kl. 14, opnar í Safnahúsinu á Húsavík sölusýning á ljósmyndum úr safni Péturs Jónassonar ljósmyndara. 

Pétur, sem féll frá í apríl á þessu ári, var listamaður Norðurþings árið 2020 og hélt veglega sýningu í tilefni þess í fyrra. 

Sýningin nú er á jarðhæð Safnahússins og stendur aðeins í tvær vikur. 

Allur ágóði sölunnar mun renna til Krabbameinsfélags Suður-Þingeyinga.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744