Skötuveisla GPG

Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið GPG bauð starfsmönnum sínum og gestum upp á skötuveislu í hádeginu í gær.

Skötuveisla GPG
Almennt - - Lestrar 571

Veislugestir að snæðingi.
Veislugestir að snæðingi.

 Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið GPG bauð starfsmönnum sínum og gestum upp á skötuveislu í hádeginu í gær. Reyndar væri réttara að nefna þetta sjávarréttaveislu því margt annað ljúfmeti var á borðum s.s saltfiskur, marineruð ýsa, harðfiskur, hákarl og hrogn svo eitthvað sé nefnt. Um 90 manns þáðu veitingarnar.

Að sögn Gunnlaugs Karls Hreinssonar framkvæmdarstjóra verka þeir GPG-menn skötuna sjálfir og fer hún víða. Að sjálfsögu sá vestfirðingurinn Aðalsteinn Júlíusson um að elda skötuna og naut aðstoðar norðlendinga við það.

Hér koma nokkrar myndir úr veislunni en fleiri má skoða hér

Skata1

Yfirkokkurinn Addi Júll færir hér skötubörð upp á diska handa Gilsurunum.

Skata2

Sjómenn GPG létu sig ekki vanta og hér bíða þeir eftir að komast í kræsingarnar.

Skata3

Sturla Þorgríms skenkir Brósa frænda sínum Malt og Appelsín í glas.

Skata4

Gestjgafinn situr að snæðingi.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744